Norræna frjósemisráðstefnan dagana 27. ágúst – 29. ágúst.

3 Sep 2026
Í ár var norræna frjósemisráðstefnan haldin í 28. sinn og að þessu sinni fór hún fram hér á Íslandi, í Hörpu.
Starfsfólk Livio sat í skipulagsnefnd ráðstefnunnar og gegndi Snorri Einarsson, yfirlæknir Livio Reykjavík, hlutverki formanns skipulagsnefndarinnar (Chair of the Local Organising Committee). Við hjá Livio Reykjavík erum sérstaklega stolt af því að hafa átt þátt í framkvæmd og skipulagningu þessa viðburðar.
Ráðstefnan er mikilvægur vettvangur fyrir fagfólk alls staðar af Norðurlöndunum, þar sem nýjustu rannsóknir og framfarir á sviði frjósemi voru í brennidepli.
Við nutum spennandi daga, öðluðumst dýrmæta þekkingu og hlökkum til að nýta hana í áframhaldandi þjónustu við skjólstæðinga okkar.