IVI Institute
Um IVI Institute
IVI Institute er leiðandi samsteypa á sviði frjósemislækninga í heiminum og býr yfir nærri 40 ára reynslu af rannsóknum og klínískri þjónustu. Samsteypan rekur meira en 200 starfsstöðvar í 15 löndum, þar sem yfir 500 sérfræðingar í læknisfræði og fósturfræði starfa saman að því að bæta árangur og þróa nýjar lausnir í frjósemismeðferðum.
Rannsóknastarfsemi IVI Institute er nátengd daglegri klínískri þjónustu. Vísindafólk og heilbrigðisstarfsfólk víðsvegar að úr heiminum deila þekkingu, reynslu og nýjustu rannsóknaniðurstöðum með það að markmiði að efla frjósemisþjónustu og bæta meðferðarúrræði fyrir skjólstæðinga.
Þessi alþjóðlega samvinna skapar sterkan grunn fyrir stöðuga framþróun á sviði frjósemislækninga og tryggir að ný þekking skili sér hratt í betri þjónustu og árangursríkari meðferðum.
Innan vébanda IVI Institute eru þekkt fyrirtæki á sviði frjósemisþjónustu, þar á meðal IVI Fertility og Everleap Fertility. Á hverju ári fæðast um 35.000 börn eftir meðferð innan IVI Institute.
· 40 ára reynsla af frjósemislækningum og rannsóknum
· 200+ starfsstöðvar í 15 löndum
· 500+ sérfræðingar í læknisfræði og fósturfræði sem vinna saman að framþróun í frjósemislækningum
· 35.000 börn fæðast árlega eftir meðferð innan samsteypunnar