Að gefa egg
Getir þú hugsað þér að gefa egg bendum við þér á heimasíðu eggjabanka Livio þar sem allar upplýsingar má finna um eggjagjöf.
Til að geta orðið eggjagjafi þarft þú að:
- Vera heilsuhraust og ekki hafa þekkta arfgenga sjúkdóma í fjölskyldunni.
- Vera 23 til 35 ára.
- Æskilegt er að þú hafir fætt eigið barn, en það er ekki krafa.
- Vera með BMI-stuðul (Body Mass Index) undir 32.
- Vera reyklaus.