Spurningar og svör

Hér finnir þú svör við algengum spurningum sem við fáum varðandi sæðisgjöf. Ef þú hefur frekari spurningar er þér velkomið að hafa samband við okkur.

Hvernig gerist ég gjafi?
Fyrsta skrefið er að fylla út umsóknina og heilsufarsskýrslu. Þegar við sjáum að þú uppfyllir grunnskilyrðin okkar fyrir sæðisgjöf höfum við samband við þig. Næsta er að fá tíma í sæðisrannsókn. Ef fjöldi sáðfruma og hreyfanleiki þeirra uppfyllir nauðsynlegar kröfur er næsta skref að fara í læknisskoðun og skila inn þvag- og blóðsýnum til að útiloka smitsjúkdóma. Einnig er framkvæmd erfðarannsókn. Því næst ferð þú í viðtal til félagsráðgjafa. Þegar allar rannsóknir hafa verið gerðar og niðurstaðan reynist fullnægjandi verður þú sæðisgjafi hjá Livio og við byrjum að skipuleggja sjálfa gjöfina í sameiningu.

Get ég verið nafnlaus gjafi?
Persónuupplýsingar um þig verða geymdar í Eggja- og sæðisbanka Livio. Þú nýtur nafnleyndar gagnvart verðandi foreldrum og barni ef þú óskar þess samkvæmt íslenskum lögum.

Fá aðrir að vita að ég er gjafi?
Nei, nafn þitt og aðrar persónuupplýsingar eru verndaðar með dulkóðun hjá Eggja- og sæðisbanka Livio og ekki gefnar til annarra.

Hversu oft getur gjafi gefið sæði?
Það verða að hafa liðið minnst 48 klukkustundir en þó ekki meira en 72 klukkustundir frá síðasta sáðláti.

Hversu oft þarf gjafi að gefa sæði?
Ef þú gerist sæðisgjafi er æskilegt að þú getir gefið minnst 4 sinnum í mánuði, en þess er þó ekki krafist.

Fæ ég þóknun?
Lög kveða á um að líffæra- og vefjagjafir skuli ævinlega vera fyrst og fremst í velgjörðarskyni. Þess vegna skal líta á sæðisgjöf sem gjöf, fúslega veitta, til viðtakandans. Sæðisgjafar fá þókun sem nemur 7.000 krónum fyrir hverja samþykkta gjöf, til að bæta þeim tekjutap og ferðakostnað.

Hvernig get ég orðið sæðisgjafi?
Fylltu út umsóknina hér  og heilsufarsskýrsluna og við höfum samband við þig varðandi næstu skref.

Gilda aldurstakmörk um gjafa?
Æskilegt er að sæðisgjafi sé á aldrinum 23 ára til 45 ára.

Hvaða rannsóknir þarf ég að gangast undir til að verða gjafi?
Til að byrja með ferð þú í sæðisrannsókn. Síðar í rannsóknarferlinu skimum við einnig fyrir smitsjúkdómum og vissum erfðasjúkdómum með blóð- og þvagprófum. Þú ert að vitaskuld alltaf upplýstur um niðurstöður þessara prófa. Hér er hægt að kynna sér rannsóknirnar sem gerðar eru.

Get ég orðið gjafi ef ég hef fengið klamydíu?
Já, þú getur gerst gjafi þótt þú hafir fengið meðhöndlun vegna klamydíusmits.