Aðstæður á rannsóknarstofunni

Til að kynfrumur og fósturvísar dafni sem best þarf umhverfi þeirra að vera eins stöðugt og öruggt og kostur er. Á rannsóknarstofunni eru því notaðir hitaskápar sem líkja eftir aðstæðum í líkamanum með nákvæmri stýringu á hitastigi, súrefnisstyrk, raka og sýrustigi.

Fylgst er reglulega með öllum hitaskápum og þeir eru tengdir sérstöku öryggis- og viðvörunarkerfi sem tryggir að aðstæður haldist ávallt innan skilgreindra marka.

Öll meðhöndlun kynfrumna og fósturvísa utan hitaskápanna fer fram í sérhönnuðum vinnubekkjum með upphitaðri vinnufleti. Þannig er dregið úr hitasveiflum og öðrum umhverfisáhrifum sem gætu haft áhrif á þroska þeirra.

Til að skapa sem bestu skilyrði fyrir frumur og fósturvísa er rannsóknarstofan búin sérútbúnu loftræsikerfi. Kerfið viðheldur yfirþrýstingi á rannsóknarstofunni og kemur þannig í veg fyrir að óæskilegar agnir og loftborin efni berist inn í umhverfið. Með þessu er tryggt hreint og stöðugt vinnuumhverfi sem styður við gæði og öryggi meðferðarinnar.